þriðjudagur, nóvember 08, 2005

Sprengjur til að fagna sprengju!?!

Eitthvað til að missa vatnið yfir

Klakinn, blessaður klakinn.. hann tók á móti mér með blindbil.. já kaldar kveðjur það, enn ég tók það nú ekkert sérstaklega persónulega í þettað skiptið, af flugvellinum skutlaði pápi mér beint upp á rás 2 í viðtal hjá Guðna Má sem gekk bara nokkuð vel. Svo var haldið af stað í snatt út um allan bæ ásamt hljómsveitinni, svo beint á æfingu og svo spilerí á Sirkús um kvöldið. Haukur, Heimir og félagar voru svo yndælir að lána okkur húsaskjól og rafmagn,þann daginn, til að æfa fyrir helgina. Sirkús.. Sigga er snillingur og vildi allt fyrir okkur gera, svo spiluðum við yfir ansi athyglisverðum viðbrögðum gesta. Við hituðum upp fyrir hina mögnuðu Björk Guðmundsdóttur, sem þeytti skífum á eftir okkur. Hún ætti kanski að renna aftur yfir Mannleg samskipti 101 bara svona til að fúnkera í íslensku þjóðfélagi. Annars spilaði hún fína músík um kvöldið, milli þess sem hún ýtti öllum í kringum sig frá, þvi enginn má vera í vegi fyrir drottningunni. Svo voru launin tekin út á sirkus til ca 1, haldið heim í föðurhús og draumaheima vitjað... til svona 10. Svo tóku við tónleikar í Smekkleysu, gallerý humar og frægð. Þar afrerkuðum við það að spila fyrir fleiri gínur enn mannfólk.. og verð ég að segja að þær eru bara mjög góðir hlustendur. Svo tóku við tónleikar í kaffi Hljómalind. Þar tókum við upp á því að lækka ansi mikið í okkur og djassa prógrammið mikið.. þetta var bara svei mér þá allveg magnað.. gæti vel hugsað mér að taka fullt af svona settum, þó svo að klakafólk hefði mátt fjölmenna aðeins betur þangað. Þá fórum við að hengja upp plagöt og flæera, svona síðasti séns fyrir útgáfu tónleikanna daginn eftir. Þá rifjaði ég upp smá svefn, vaknaði og haldið var á æfingu.. nú auðvitað fór rafmagnið í afingahúsnæðinu, enn þó bara okkar meginn á ganginum, bara svona í tilefni stress okkar fyrir útgáfusettið. nú Siggi á gauknum tók vel í skæl okkar og hleypti okkur inn á Gaukinn til að æfa , af sannri manngæsku, og er sá mæti snillingur kominn í okkar bækur sem meistari. Tónleikarnir gengu vel fyrir sig og vorum við bara nokk sátt, enn þreytt. Eitt atriði verð ég þó að nefna.. þessir svo kölluðu vinir mínir í decode, þar sem ég er skráður látinn, já þið vitið hver þið eruð... ekki sáuð þið ykkur fært að njóta kvöldsins með okkur fyrir utan náttúrulega Stebba meistara og Kötlu SNILLING, sem gæddu staðinn ljósi og gleði ... og flassi..
Þetta skal ég muna þegar þið haldið útgáfutónleika!!
Svo var haldið aftur til skotapilsa á þriðjudeginum´. Í flugrútunni, til víkur kefla, var enginn annar en uppáhalds íslendingurinn okkar, já, Bobby Fisher,you know,you know,you know, þetta sagði hann yfir þúsund sinnum á þessari stuttu ferð, milli þess sem hann skrafaði um samsæri cia, fbi, og samstarf þeirra við íslensku lögregluna, sem voru náttúrulega allir að fylgjast með Bobby. Já það er eins gott að eftirlitið með kallinnum er svona gott, annars væri hálf jörðin atvinnulaus!!!
ekki meira nöldur í bili
skál!

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þegar þú verður með gigg í höfuðstað norðurlands (nei, ég er ekki að tala um Húsavík) þá verð ég fyrst á svæðið.... Promise. Þegar þú verður frægur, eða sko frægari, þá mun ég auðvitað borga morðfjár til að leggja tónlist þína að eyrum mér, og ferðast yfir hálfan hnöttinn...... það var bara svo lélegt færi suður núna....Sorrí maður.

5:33 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hei...ég mætti!!

5:18 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

maximilius